Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

frumvarp um veiðistjórn grásleppu.

[13:32]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Ég vil vekja athygli forseta á því að það urðu hér alvarlegir atburðir í atvinnuveganefnd þingsins í morgun. Þá var tekið út úr úr nefndinni grásleppufrumvarpið. Það er augljóst hverjum manni sem fer yfir málið að það brýtur í bága við stjórnarskrá íslenska lýðveldisins og það er nú svo að allir sem starfa hér á þinginu hafa svarið eið að því að halda þessa stjórnarskrá. Því vil ég vekja athygli forseta á því að það er eitt og annað í þessu frumvarpi sem mun kasta rýrð á störf þingsins ef það verður samþykkt. Ég tel það alveg fullljóst að þetta mál sé þannig að það er ekki tækt til meðferðar á þinginu. Hæstv. forseti hefur verið vandur að virðingu sinni varðandi það hvaða mál hann setur á dagskrá. Hann hefur hér aftekið að t.d. Lindarhvolsmálið yrði sett á dagskrá. Hér er um miklu alvarlegra mál að ræða. Hvers vegna vildi hann ekki setja Lindarhvolsmálið á dagskrá? Jú, þar var um að ræða eitthvert ófullburða gagn að mati forseta.