Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Sumardaginn fyrsta mætti mennta- og barnamálaráðherra í Garðyrkjuskólann á Reykjum til að afhenda Garðyrkjuverðlaunin 2023. Ráðherra tjáði sig um Garðyrkjuskólann í framhaldinu og skrifaði m.a. þetta á samfélagsmiðla, með leyfi forseta:
„Til að nýta betur þau miklu sóknarfæri sem íslensk garðyrkja hefur þá er mikilvægt að námið sé framsækið og aðstaðan sé góð. Talsverðar breytingar hafa staðið yfir á umgjörð námsins með flutningi þess frá Landbúnaðarháskóla Íslands og beinni tengingu við Fjölbrautaskóli Suðurlands.“
Hann sagði að þessar breytingar væru strax byrjaðar að skila auknum krafti og hann ætlaði að nýta þetta tækifæri m.a. með aukinni uppbyggingu á Reykjum. Það mætti ætla miðað við orð ráðherra að allt sé á uppleið hjá Garðyrkjuskólanum en veruleikinn virðist vera allt annar. Svo virðist sem sú fjármögnun sem átti að eiga sér stað með flutningi Garðyrkjuskólans til Fjölbrautaskóla Suðurlands hafi ekki skilað sér. Landbúnaðarháskólinn hefur nú við þessa tilfærslu tekið það sem hann taldi tilheyra sér og eftir stendur Garðyrkjuskólinn án fjármagns til að kaupa ný tæki, eins og fyrirheit voru gefin um. Skrúfað hefur verið fyrir öll fjárútlát. Þessi vonda staða bitnar eingöngu á starfsfólki og nemendum. Í ræðu ráðherra kom fram að hann hefði stofnað stýrihóp um forgangsröðun framkvæmda á Reykjum og lét að því liggja að sú vinna ætti að vera í nánu samstarfi við atvinnulífið, starfsfólk Garðyrkjuskólans og FSU. Ekkert slíkt samstarf virðist þó hafa átt sér stað. Allt frá því að Garðyrkjuskólinn á Reykjum var stofnaður hefur hann verið stolt Sunnlendinga og staðið fyrir aukinni menntun á sviði garðyrkju á Íslandi. Nú þarf, virðulegur forseti, að spýta í lófana. Garðyrkjumenntun verður að vera í boði hér á landi og vel um hana haldið.