Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

Störf þingsins.

[13:36]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf):

Virðulegi forseti. Það er frægt viðtalið við forsvarsmenn fyrirtækis á landsbyggðinni fyrir allmörgum árum þar sem rætt var vítt og breitt um stöðuna; viðskiptavinir gríðarlega ánægðir, þetta gekk allt rosalega vel og allir voða kátir, starfsmenn og viðskiptavinir, allt gekk vel — nema ja, fjármálin, þau voru að vísu í tómu tjóni. Ég nefni þetta í því samhengi að við tölum hér um alla skapaða hluti en við víkjum okkur undan umræðunni um fjárhags- og efnahagsástandið og ekki bara eins og það er núna heldur um þann grunn sem við höfum búið við í efnahagslífi okkar eiginlega frá stofnun lýðveldisins og þann ólgusjó sem þar hefur ráðið ríkjum og för, skulum við segja; upp og niður, ófyrirsjáanleikinn stöðugur, eitt í dag, annað á morgun. Það er sjálft kerfið, það er sjálft efnahagskerfið, sem við þurfum að fara að grandskoða.

Í grein í Vísi í gær leyfði ég mér að setja samhengi á milli hrakandi geðheilsu Íslendinga, sem er stóralvarlegt mál og nátengt heimsmeti í geðlyfjaáti, og óstöðugleika íslensks efnahagslífs sem kynslóð eftir kynslóð hefur mátt búa við. Það er engin ein patentlausn til á því. Það þarf að hugsa hluti upp á nýtt. Það þarf að setja það á dagskrá eitt og sér að við getum ekki boðið börnum okkar og framtíðarkynslóðum upp á það ástand sem við höfum látið bjóða okkur. Þetta er engum einum að kenna. Þetta er geðleysi okkar sjálfra að kenna, að þora ekki að takast á við þetta og horfast í augu við þetta. Ég vil að við höldum ráðstefnu um íslenskt efnahagslíf til frambúðar á komandi þingi og ræðum það með atfylgi bestu manna og kvenna hvernig við getum skorið okkur út úr staðreyndum (Forseti hringir.) á borð við þær að í Danmörku færðu fasteignalán með 1% vöxtum en hér, ég fletti því upp, eru 9,93% vextir. Þetta er ávísun á vanlíðan. Þetta er ávísun á aukið heilbrigðisvandamál á Íslandi.