Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

Störf þingsins.

[13:39]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin kynnti í gær aðgerðir til að vinna gegn hárri verðbólgu og frekari hækkun vaxta. Þetta er til viðbótar við þá skýru stefnu sem birtist í framlagðri fjármálaáætlun. Sannarlega ábyrgt og mikilvægt skref sem styður við aðgerðir Seðlabanka Íslands, spornar gegn þenslu og mætir hópum sem eru sérstaklega viðkvæmir fyrir áhrifum verðbólgu og vaxtahækkana.

Afkoma ríkissjóðs stórbatnar áfram miðað við fyrri áætlanir, en samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans er afkoma nú 90 milljörðum betri en gert var ráð fyrir við samþykkt fjárlaga. Framkvæmdum verður frestað tímabundið. Meðal verkefna sem er frestað eru nýbygging Stjórnarráðsins og samhæfingarmiðstöð viðbragðsaðila. Grunnþjónusta er hins vegar áfram undanþegin aðhaldi. Um það ríkir sátt. Engin aðhaldskrafa er gerð á almannatryggingar, sjúkratryggingar og heilbrigðis- og öldrunarstofnanir. Til að verja kaupmátt örorku og ellilífeyrisþega verður lífeyrir almannatrygginga nú hækkaður um 2,5% frá miðju ári til viðbótar við þá 7,4% hækkun í upphafi árs. Frítekjumark húsnæðisbóta leigjenda verður hækkað um 2,5% fyrir yfirstandandi ár, afturvirkt frá 1. janúar, til viðbótar við hækkun um 7,4% í upphafi árs.

Virðulegi forseti. Að lokum: Stöðugleiki á húsnæðismarkaði er forgangsmál ríkisstjórnarinnar. Því verða stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins tvöfölduð og framlög til hlutdeildarlána aukin enn frekar þannig að í stað þess að 500 íbúðir verði byggðar árlega 2024–2025, með stuðningi ríkisins, verða þær 1.000 á ári. Þá er unnið að lagabreytingum sem bæta réttarstöðu leigjenda á húsnæðismarkaði og leitað leiða til að draga úr þrýstingi á húsnæðismarkaði. Þessar aðgerðir og fleiri til munu styðja við aðgerðir Seðlabanka Íslands og sporna gegn þenslu.