Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Ég var rétt í þessu að koma af fundi fjárlaganefndar. Ég ætla að leyfa mér að lýsa því þannig að ég geng út af þeim fundi mjög döpur. Ég furðaði mig á því í gær þegar ég las fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar hvers vegna það kom aldrei fram hvert markmiðið væri, hver væru tölulegu markmið, að hverju væri stefnt. Markmið sem ekki liggja fyrir nást aldrei. Hvar eru töluleg markmið ríkisstjórnarinnar um þróun verðbólgu? Hvar eru markmiðin um það hver áhrifin eiga að vera á næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans? Ég furðaði mig á því hvers vegna forystumenn ríkisstjórnarflokkanna lýstu því í engu að hverju væri stefnt. Svarið við því hvers vegna ekkert var sagt um það í gær er nú fram komið. Meiri hluti fjárlaganefndar leggur til að fjármálaáætlun, sem var lögð fram í vor, verði samþykkt óbreytt. Engar breytingar, ekkert aukið aðhald, sem allir sem komið hafa fyrir nefndina hafa sagt að sé nauðsynlegt fyrir heimilin og fyrirtækin í landinu eigi að ná tökum á verðbólgu. Meiri hlutinn hefur hlustað á allar þessar umsagnir. Meiri hlutinn hefur fylgst með almenningi og fyrirtækjum í landinu fá á sig vaxtahækkun og vaxtahækkun og gerir ekki neitt. Ríkisstjórnin heldur blaðamannafund og sendir út sömu tillögur og sendar voru út þegar síðasta fjárlagafrumvarp var lagt fram síðasta haust, sendir aftur út tillögur um að Stjórnarráðið lofi því að ferðast minna og fresta einhverjum framkvæmdum. Þetta er svo stórkostlega alvarlegt sem hér er að gerast því að þetta hringrásarkerfi hugmynda ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) mun verða þess valdandi að það lengist í verðbólgukaflanum og heimilin og fyrirtækin í landinu (Forseti hringir.) fá áfram á sig vaxtahækkanir sannarlega í boði þessarar ríkisstjórnar.