Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það eru sjálfsögð mannréttindi að kjör fatlaðs og veiks fólks dugi til mannsæmandi lífs. Mannsæmandi kjör fyrir fatlað og veikt fólk eru grundvallaratriði fyrir þátttöku þeirra í okkar ríka þjóðfélagi. Rétt kjör eru eini möguleiki þeirra og barna þeirra á að lifa til jafns við aðra í samfélaginu og það veltur á því að kjör þeirra dugi fyrir fæði, klæði og húsnæði. Að halda þeim verst settu svo árum skiptir í tilbúinni fátæktargildru keðjuverkandi skerðinga og skatta í boði ríkisstjórnar eftir ríkisstjórnar er ömurleg aðferð til að einangra og aðgreina fatlað fólk frá samfélaginu.
Nú styttist í endurskoðun á örorkukerfi almannatrygginga og vonandi verður þá einnig tekið fast á keðjuverkandi tekjuskerðingum sem fara stjórnlaust út um allt kerfið eins og illa forrituð gervigreind. Lífeyrislaun öryrkja eru lægri en lágmarkslaun og atvinnuleysisbætur sem er fáránlegt og ekki bæta úr skák keðjuverkandi skerðingar vegna tekna sem gerir þeim illmögulegt að bæta kjör sín.
Alþingi verður að viðurkenna réttindi fatlaðs og aldraðs og veiks fólks og fjölskyldna þeirra til viðunandi lífskjara. Aldrað, fatlað og veikt fólk á lífeyrislaunum á fullan rétt á að eiga fyrir lífsnauðsynlegum útgjöldum. Okkur hér á Alþingi ber að berjast fyrir bættum lífskjörum þeirra verst settu með því að sjá til þess að ekkert barn, fatlað fólk eða aðrir þurfi að engjast í heimatilbúnum fátæktargildrum ríkisstjórnarinnar sem heldur þeim illa félagslega einangruðum og jaðarsettum alla ævi. 2,5% hækkun dugir engan veginn til. Því eru það sjálfsögð réttindi að lífeyrir almannatrygginga hækki þannig að hann verði 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust eins og frumvarp Flokks fólksins boðar. Frítekjumörk verða einnig hækkuð strax því að það er löngu tímabært að uppfæra þau samkvæmt launavísitölu og þá aftur í tímann. Að öllu þessu tilefni gefnu: Ríkisstjórn, hættið strax að skatta og skerða til sárafátæktar.