Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Já, það er stundum eins og þessi ríkisstjórn búi á allt annarri eyju, þar sem fólk drekkur frumjöfnuð af flöskum og gæðir sér á meðaltölum í morgunmat. Það er þeirra smjör og brauð þrátt fyrir 13 stýrivaxtahækkanir í röð. Og nú heyrum við það hér á göngunum að ekki á að gera eina einustu breytingu á fjármálaáætlun, ekki neina. Þetta er dæmigert, það á ekki að bregðast við ástandinu í samfélaginu eins og það er í dag.
Við búum á eyju þar sem matarkarfan hefur hækkað um 17% á síðastliðnu ári. Samt á ekki einu sinni að fara í neinar tímabundnar breytingar á tollum sem strax myndi skila sér til neytenda. Á þessari sömu eyju er ríkissáttasemjari skilinn eftir með mjög óskýrar heimildir vegna þess að ríkisstjórnin getur ekki tekið ákvarðanir, hún bara getur það ekki. Á eyjunni sem ég bý á taka heimilin á sig hundruð þúsunda um hver mánaðamót. Þar fann ríkisstjórnin sína framvarðasveit gegn verðbólgu. Venjulegt launafólk, kennarar, verkfræðingar, smiðir, hjúkrunarfólk sem borgaði 130.000 kr. af 40 millj. kr. láni fyrir ári greiðir nú 360.000 kr. af sama láni. Við setjum stíf lög um smálánafyrirtæki og fordæmum aðferðafræði þeirra en þegar formaður Sjálfstæðisflokksins og æðstu ráðamenn okkar gengu fram með yfirlýsingar um lágvaxtalandið Ísland, sem breyttist síðan í hávaxtaland, er ekkert annað að gera fyrir þau sem trúðu boðskapnum en að borga meira. Það er engin ábyrgð hjá þeim sem héldu fram frasanum um lágvaxtalandið. Á eyjunni sem ég bý á ríkir engin samkeppni á bankamarkaði, tryggingamarkaði, olíumarkaði og smásölumarkaði vegna þess að við búum við örgjaldmiðil sem bara gömlu flokkarnir treysta og trúa á og svo auðvitað Kaupfélag Skagfirðinga og Morgunblaðið og stærstu útgerðirnar.
Það er kominn tími til að ríkisstjórnin hætti að drekka þennan frumjöfnuð sinn af þessum flöskum. Hún þarf aðhald. Hún þarf að boða skýrt aðhald og auka tekjur ríkissjóðs. (Forseti hringir.) Það er engin sanngirni í því að venjulegt fólk standi eitt í baráttunni við verðbólguna á meðan ríkisstjórnin tekur hálft skref í átt að aðhaldi (Forseti hringir.) og hlífir síðan þeim sem nýta sér sameiginlegar náttúruauðlindir okkar með auðsóttri tekjuöflun.