Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Ég hef verið þeirrar skoðunar að þingmál sem lögð eru fram á Alþingi eigi að fá þinglega meðferð. Fyrir þeim sé mælt, þau tekin fyrir í nefnd, kallað eftir umsögnum og málin afgreidd úr nefnd með nefndaráliti. Það er dónaskapur við umsagnaraðila, starfsfólk Alþingis, þingið sjálft og lýðræðið að framlögð mál fái ekki þinglega meðferð. Þingmannamál sem mælt hefur verið fyrir daga nær undantekningarlaust uppi í nefnd, fáist þau á annað borð flutt, og nær engin ná aftur í 2. umr. í þingsal. En vegna þeirrar umræðuhefðar sem skapast hefur hér í þinginu næst ekki eðlilegt flæði í þingstörfunum. Málþóf, óratími í fundarstjórn forseta og tilefnislaus og illa ígrunduð upphlaup eru skammarlegt einkenni þingstarfanna sem þekkjast ekki í þingum sem starfa eftir líkum fundarsköpum og Alþingi Íslendinga. Á fundum með erlendum kollegum okkar tala þeir um þingstörfin á Íslandi í hljóði og undrast störf þingsins. á Íslandi Dæmi eru um að þingmenn hafi flutt yfir 100 þingræður í máli sem áður hafði verið lagt fyrir þingið í fjögur skipti. Ég ætla að skjóta á það að líklega hafi yfir 1.000 ræður verið fluttar um útlendingafrumvarpið á fimm þingum af nokkrum þingmönnum. (AIJ: Þúsund bara á þessu þingi.) — Það er bannað að kalla frammí, er það ekki? (Gripið fram í.) Það er alltaf verið að skamma mig fyrir það. — Oft eru það sömu aðilarnir og flytja þessar ræður sem skilja svo ekkert í því að þingmannamálin hafi ekki pláss á dagskránni.
Virðulegur forseti. Samkvæmt þingfundaskrifstofu voru lögð fram í heildina 256 þingmannamál á liðandi þingi. Þrjú þeirra hafa verið samþykkt og einu hefur verið hafnað. 169 þingmannamál eru til umfjöllunar í nefnd og þá bíða 83 þingmannamál 1. eða fyrri umræðu. Miðað við þessar tölur fengu fjögur mál eða 1,5% þingmannamála afgreiðslu. Ekki er vitað hvort einhver þingmannamál verði afgreidd á síðustu dögum þingsins.
Virðulegur forseti. Það eru minni líkur á því að þingmannamál nái fram að ganga en að þingmenn fái vinning í lottóinu. En hvað kosta þessi 256 þingmannamál kjósendur? Ég ætla að hvert þingmannamál kosti um 200.000 kr. og heildarkostnaðurinn er 51 milljón. (Forseti hringir.) En það er ekki bara kostnaðurinn sem vex mér í augum. Það er framkoma okkar þingmanna við meðferð þingmála og umræður í þingsal sem ég hef áhyggjur af.