Störf þingsins.
Frú forseti. Ég vil vekja athygli á svari sem ég fékk nú fyrir nokkrum mínútum frá hæstv. matvælaráðherra þar sem hún greinir frá því að hún sé ekki að gera eitt eða neitt í starfi sínu, ekki neitt, og virðist ekki hafa skoðun á því heldur. Það sem hún hefur lagt fram á þinginu eru einhver frumvörp og tillögur sem hún hefur fundið í skúffum ráðuneytisins. Hún hefur verið að róta og fengið þá einhver mál hér, einhver ógeðsmál frá fyrrum hæstv. sjávarútvegsráðherra, Kristjáni Þór Júlíussyni, og gert að sínum. En svo þegar hún er spurð hér, í fyrirspurn frá þeim sem hér stendur, um hvað hún hafi gert varðandi úrbótatillögur, t.d. sem snúa að vigtun sjávarafla, þá er ekki eitt eða neitt, það kemur bara núll frá henni. Hún er m.a. spurð út í núverandi reglur, þ.e. að menn geti vigtað aflann heima hjá sér og jafnvel endurvigtað, og þá virðist hún ekki hafa neina skoðun á því. Það kemur ekki einu sinni skýrt fram hvort hún ætli að fara að tillögum Ríkisendurskoðunar, sem er auðvitað fáheyrt. Í staðinn fáum við hér frumvörp um óhefta sókn með óheftu vélarafli á grunnslóðina en þegar kemur að því að fara að tillögum sem snúa að hagsmunum almennings þá virðist hún ekki einu sinni hafa skoðun á því, sem er auðvitað stórundarlegt.
Hún fær hér einfalda spurningu, er spurð hvort til greina komi að hætta heimavigtun og endurvigtun. Það er ekkert svar. Ég vil spyrja hæstv. matvælaráðherra: Er skýringin sú að það er ekkert um þetta atriði í skúffunni sem Kristján Þór skildi eftir sig? Það er auðvitað með ólíkindum að Vinstri grænir skuli bjóða upp á svona svör. Hagsmunir almennings eru algerlega hafðir út undan og hæstv. matvælaráðherra gerir hér greinilega þrönga hagsmuni að hagsmunum sínum og Vinstri grænna. Þetta svar er með ólíkindum, frú forseti.