Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

Störf þingsins.

[13:58]
Horfa

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir (P):

Herra forseti. Í gær tilkynnti ríkisstjórnin verðbólguaðgerðir sem ég ætlaði alla vega að koma til að fagna og hrósa en eftir að kom í ljós í fjárlaganefnd að þetta eru ekki neinar aðgerðir heldur bara tilfærsla á einhverju fjármagni til að gera eitthvert fínt PR-statement er ekki lengur hægt að hrósa því. Mig langaði aðeins að að velta því upp að í staðinn fyrir að vera alltaf að spyrja hvort það sé nóg gert eða ekki þá þurfum við að fara að pæla í því hvaða aðgerðir virka, hvað sé skilvirkt og hvernig við getum komið í veg fyrir að gera ekki sömu mistök og áður.

Í kórónuveirufaraldrinum gaf ríkisstjórnin út styrki til fyrirtækja sem voru hugsaðir til þess að koma í veg fyrir tekjutap og tryggja að fyrirtæki gætu greitt laun. En hver var niðurstaðan í því máli? Við sáum að fyrirtæki greiddu sér bara út metháar arðgreiðslur, í því magni að vera einmitt verðbólguaukandi. Sömu aðgerðir í Evrópu leiddu ekki til jafn hárrar verðbólgu því þar var fjármagni stýrt í aðgerðir sem auka framleiðslugetu og tryggja einmitt að það fari til þeirra aðila sem þurfa á því að halda en ekki bara vonast til þess eins og hér var gert. Því miður óttast ég að við séum að falla í sömu gildru aftur.

Aukið aðgengi að húsaleigubótum gagnast ekki þeim tekjulægstu sem mest þurfa á stuðningi að halda og aukna aðgengið mun bara enda í leiguhækkun án þess að leiguþaki sé komið á alla vega tímabundið. Hvernig væri að þingið myndi hugsa aðgerðir sínar aðeins meira út frá fólki? Ef við viljum lækka leiguverð, flott. Fylgjum þeirri aðgerð eftir með leiguþaki til að verðhækkanir sogi ekki upp aðgerðina. Ef við viljum aðstoða fólk sem er að glíma við 150.000 kr. aukningu á mánaðarlegum afborgunum lána, setjum á vaxtabætur. Ef við viljum gera peningastefnu Íslands skilvirkari til að þurfa ekki að hækka vexti 13 sinnum og bjóða fólki upp á þessar sveiflur, glæsilegt, festum þá vexti við Evrópu, afnemum verðtryggð lán og vinnum að alvörulausnum í vaxtaumhverfi Íslands til að bæta kjör fólks í landinu.

Burt séð frá því hverjar stjórnmálaskoðanir okkar eru þá er ljóst að það þarf að vinna í skilvirkum aðgerðum. Aðgerðirnar sem ríkisstjórnin kynnti í gær og sú aðferðafræði sem var notuð til þess trúi ég að ætti að endurhugsa. (Forseti hringir.) Hagstjórnin hjá þessari ríkisstjórn er sveiflukennd og óábyrg, að fólkið í landinu þurfi að vera hagfræðingar (Forseti hringir.) til þess að geta skilið hvað eigi að gera þegar það tekur lán tíðkast ekki í nágrannalöndunum. Hvernig væri að hætta (Forseti hringir.) að nudda töfralampann og óska þess að vonandi fari nú fjármagnið okkar í rétta hluti og í staðinn að taka höndum saman og tryggja það sjálf? (Gripið fram í: Heyr, heyr.)