Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við öll sem sitjum hér á Alþingi erum kjörin af þjóðinni og við í Framsókn höfum og ætlum okkur áfram að fjárfesta í fólki og vera gjallarhorn okkar kjósenda. Við vinnum að umbóta- og framfaramálum fyrir þjóðina og fólk treystir á okkur sem hér sitjum að vera skynsemisröddin og ekki í sandkassaleik: Þú gerðir eða gerðir ekki, skilar okkur engu þegar fram í sækir. Rökræn og skynsamleg umræða er það sem ég er komin hingað til að kalla eftir. Orð sem eru látin falla hér eða annars staðar úti í samfélaginu af okkar hálfu bera svo sannarlega ábyrgð því að fólk hlustar á okkur. Það treystir og býst við því að við nálgumst umræðuna með röksemdum, skynsemi og staðreyndum.
Í sameiningu á þessu kjörtímabili höfum við öll unnið að ýmsum framfaramálum í þágu þjóðarinnar og ég hvet okkur til að halda því áfram og vera í samvinnu með hlutina. Stjórnmálin eru oft skemmtileg en þau eru líka krefjandi og sérstaklega á tímum sem þessum. Í gegnum allt lífið færum við ákveðnar fórnir fyrir þær ákvarðanir sem hafa verið teknar. Þetta ferðalag sem lífið er býður ekkert oft upp á mikla fyrirhyggju frá degi til dags. En við vinnum af sannfæringu og höfum trú á því að það sem við erum að gera sé það rétta í stöðunni. Þá vil ég hvetja okkur til að nálgast næstu daga og vikur með samvinnuhugsjón og nálgast hlutina út frá skynsemi og með röksemdum og staðreyndum. Við eigum ekki að vera að benda í allar áttir eins og við séum í sandkassa á leikskóla.