Störf þingsins.
Frú forseti. Ríkisstjórnin taldi sig nauðbeygða til að leggja fram aðgerðaáætlun til að takast á við verðbólguna. Og skiljanlega, hún hafði mátt þola mikla gagnrýni fyrir að bregðast ekki við. En svo birtist áætlunin í síðustu viku áformaðra þingstarfa og þar er ósköp lítið að finna. Það er eins og menn hafi tínt saman eitt og annað til að nefna án þess að finna neinar alvöruhugmyndir. Og margt af þessu er endurvinnsla, verið að segja okkur frá einhverju sem við vissum fyrir og var löngu búið að ákveða og var í fjármálaáætlun; það er meira að segja vísað í að þetta og hitt sé í fjármálaáætlun enda stendur ekki til að breyta fjármálaáætluninni af hálfu ríkisstjórnarinnar, eftir því sem okkur skilst, engin merki um það. Með öðrum orðum: Meira af því sama. Svo á reyndar að hækka örorku og ellilífeyri um 2,5%, á meðan verðbólgan er um 10%, til viðbótar við fyrri hækkun. En verður það þá ekki bara jafnað út við næstu áramót fyrir utan það að þetta fer hvort eð er meira og minna allt í skerðingar? Skerðingarnar á lífeyrinum — það er ekki enn búið að taka á því eins og var lofað hér fyrir allmörgum árum.
En sem uppfyllingarefni eru nefnd allskondin atriði, frú forseti, t.d. það að fjármálareglur eigi að taka gildi ári fyrr en áætlað hafi verið. Þeim var tímabundið vikið til hliðar í heimsfaraldrinum. Ríkisstjórnin ætlar aftur að taka upp reglurnar til að hafa hemil á sjálfri sér. Það sýnir kannski eitthvert skynbragð á hversu illa þessari ríkisstjórn hefur gengið að takast á við efnahagsmálin. Og það á að leggja aftur fram frumvarp um Þjóðarsjóð. Þrátt fyrir að þessari ríkisstjórn hafi tekist að eyða svo miklum peningum að með eðlilegum afgangi muni líklega taka áratugi að borga niður skuldirnar sem hún hefur myndað ætlar hún að leggja fram hugmyndir um að fara að safna í (Forseti hringir.) þjóðarsjóð.
Frú forseti. Þessi aðgerðaáætlun er tóm sýndarmennska eins og svo margt sem við sjáum frá þessari ríkisstjórn.