Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

aðgerðir stjórnvalda vegna verðbólgu.

[14:12]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Frú forseti. Þingið hefur verið í biðstöðu eftir því að meiri hluti fjárlaganefndar klári tillögur að breytingum á fjármálaáætlun sem er langt á eftir áætlun. Miðað við fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar í gær um verðbólguaðgerðir ríkisstjórnarinnar mátti ætla að fram kæmu tillögur um 36 milljarða kr. sparnaðar- og tekjuöflunaraðgerðir ríkisstjórnarinnar til að takast á við verðbólguna og versnandi lífskjör í landinu. En, nei, biðin langa var eftir engu. Það eru nákvæmlega engar breytingartillögur við fjármálaáætlun. Ég man ekki til þess að hafa upplifað það áður, það er alla vega langt síðan. Þetta segir okkur að það er nákvæmlega ekkert nýtt á bak við þessa 36 milljarða sem auglýstir voru í gær af hálfu ríkisstjórnarinnar. Með öðrum orðum eru verðbólguaðgerðir ríkisstjórnarinnar ekkert nema blekkingarleikur og tálsýn, til þess ætlað að blekkja almenning. Virðulegur forseti. Það er ekki vel farið með tíma almennings og ekki vel farið með tíma þingsins að draga okkur hér á asnaeyrunum, að sýna þolinmæði fyrir tillögum sem svo birtast ekki.