Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

aðgerðir stjórnvalda vegna verðbólgu.

[14:14]
Horfa

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir (P):

Herra forseti. Mig langaði að vekja athygli á þeirri stöðu að það hafi tekið ríkisstjórnina 13 stýrivaxtahækkanir að loksins ákveða að gera eitthvað í verðbólgunni, sem snertir einmitt mína kynslóð mjög mikið, og að þegar loksins var komið að því að tilkynna aðgerðir kom í ljós að það var mjög lítið á bak við þessar aðgerðir. Ég fagna því mjög að við séum loksins komin á bragðið með það að vilja gera eitthvað í verðbólgunni en mig langar að vekja athygli á því að hugsa aðgerðirnar aðeins meira út frá því hvað sé skilvirkt því að það eru mjög margar spurningar sem halda vöku fyrir mér. Hvernig væri að Alþingi myndi hugsa þessar aðgerðir sínar aðeins meira út frá fólki í staðinn fyrir að nudda bara töfralampann og óska þess að fjármagnið fari vonandi í það að lækka verðbólgu? Ef við viljum lækka leiguverð, flott, fylgjum þessari aðgerð eftir með leiguþaki til þess að verðhækkanir sogi ekki upp aðgerðina. Ef við viljum aðstoða fólk sem er að glíma við 150.000 kr. aukningu á mánaðarlegum afborgunum lána, setjum á vaxtabætur. Ef við viljum gera peningastefnu Íslands skilvirkari til að þurfa ekki að hækka vexti 13 sinnum og bjóða fólki upp á þessar sveiflur, þá glæsilegt, festum vexti við Evrópu, (Forseti hringir.) afnemum verðtryggð lán og vinnum að alvörulausnum í vaxtaumhverfi Íslands til að bæta kjör fólks í landinu.