Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 117. fundur, 6. júní 2023.
heilbrigðisstarfsmenn.
987. mál
Virðulegi forseti. Ég vil þakka velferðarnefnd fyrir mjög gott samstarf í þessu máli og vil ítreka það að lagt er til í nefndaráliti meiri hlutans að lífeyrisgreiðslur verði útfærðar til þeirra sem eru yfir sjötugt, af ráðherrum sem hafa með það að gera. Það er mikilvægt að slíkt verði gert áður en bráðabirgðaákvæðið tekur gildi til að jafna stöðu þeirra sem eru yfir sjötugt og kjósa að vinna lengur.