Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:17]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Þetta snýst um jöfn kjör, sömu kjör fyrir sömu vinnu. Við vitum að ef við neglum það ekki í lög þá gildir það ekki. Við þekkjum hvað varð af þingsályktunartillögu um hagsmunafulltrúa aldraðra og við vitum að við þurfum að ganga frá því í eitt skipti fyrir öll að þetta sé í lögum. Miðað við hvernig frumvarpið er uppbyggt — það þyrfti að taka það aftur inn í nefnd og endurskoða það, fresta málinu þar til það yrði vel unnið og fullunnið. Það á hvort sem er ekki að taka gildi fyrr en um næstu áramót. Við getum auðveldlega komið þessu máli á réttan kjöl og gert það vel þannig að það verði okkur til sóma. Það er það sem við eigum að gera.