Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:18]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er að mörgu leyti um merkilegt og mikilvægt mál að ræða; réttlætismál, réttindamál, mál sem hefur verið í deiglunni í nokkurn tíma og birst í áformum flokka og þingmálum sem ekki hafa náð fram að ganga, mál í takti við breytta tíma. Frá því að Alþingi ákvað árið 1947 að hámarksaldur opinberra starfsmanna skyldi miðast við 70 ár hefur meðallífaldur hér hækkað um tíu ár og við erum jafnframt heilsuhraustari. Málið er í samræmi við stjórnarsáttmála og hefur heilt yfir, bæði í undirbúningi og samráðsferli, umfjöllun þingsins og hv. velferðarnefndar og umsögnum, fengið jákvæðar undirtektir. Ég tek undir þau sjónarmið að slík breyting ætti að gilda um alla opinbera starfsmenn og bind vonir við að þessi samþykkt hér hraði þeim áformum og að skyldulífeyrir og mótframlag lífeyrisgreiðslna verði þá tekið fyrir með heildrænum hætti. En hér er tekið af skarið á þeim forsendum að þetta sé liður í því ásamt öðrum aðgerðum að styðja við mönnun í heilbrigðiskerfinu sem er mikil áskorun. (Forseti hringir.) Ég vil þakka framsögumanni málsins og velferðarnefnd, Alþingi og hagaðilum fyrir greinargóða umfjöllun og málsmeðferð.