heilbrigðisstarfsmenn.
Forseti. Hér er verið að heimila ríkisreknum heilbrigðisstofnunum að ráða til sín heilbrigðisstarfsfólk sem er orðið 70 ára og eldra, en á sama tíma er ekki verið að tryggja sömu kjör og réttindi fyrir þetta fólk. Í nefndaráliti meiri hluta er talað um mikilvægi þess að kjör og réttindi fólks sem hefur náð 70 ára aldri séu þau sömu. En það er ekkert gert til að tryggja það og það er mjög alvarlegt, forseti. Þess vegna höfum við þrír hv. þingmenn, Oddný G. Harðardóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson og sú sem hér stendur, lagt fram breytingartillögu sem tryggir þessi réttindi og við Píratar munum ekki geta samþykkt þetta mál á meðan það er verið að skapa ójafnvægi, þ.e. að það verði hópur fólks sem mun starfa innan heilbrigðiskerfisins sem nýtur ekki sömu réttinda og annar hópur. Það er ótækt. Það er ótæk afgreiðsla á þessu annars mikilvæga máli.