Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:22]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um mál sem er til komið vegna mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu, ekki vegna þess að þetta sé, eins og hæstv. ráðherra nefndi, eitthvert réttindamál, heldur til þess að bregðast við vanda sem er búinn til. Í mínum huga er þetta frumvarp eins og það lítur út núna að staðfesta ákveðið óréttlæti sem hefur m.a. birst okkur hér á Alþingi þar sem ákveðnir þingmenn hafa ekki notið framlaga í lífeyrissjóði eins og við hin. Það liggur fyrir breytingartillaga frá þingmönnum í minni hluta velferðarnefndar sem bætir þetta mál verulega. Ef sú breytingartillaga verður samþykkt þá er þetta mál orðið ágætt. En ef það gerist ekki er þetta mál í mínum huga ónýtt.