Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:23]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Flokki fólksins gerum okkur fullkomlega grein fyrir því hversu mikill vandi er í heilbrigðiskerfinu okkar, hve mikill skortur er á starfskröftum þar. Þetta frumvarp, hversu góður vilji sem að baki því liggur, byggir á algjörri mismunun, aldurstengdri mismunun, þar sem ákveðinn hópur í ákveðinni starfsgrein, sem er orðinn 70 ára gamall, á að fá að taka til starfa. Við í Flokki fólksins teljum málið allverulega vanreifað og virkilega ástæðu til þess að kalla það inn aftur og koma því fullbúnu hér inn í þingið. Ég tek undir þær áhyggjur sem hér hafa komið fram áður. Hér er verið að rýra umsamin launakjör fólks eftir 70 ára aldur með því að gera það að ódýrari starfskröftum. Ég ítreka, frumvarpið er alls ekki nógu vel ígrundað og alls ekki nógu vel unnið eins og það liggur fyrir núna. Við í Flokki fólksins getum engan veginn stutt það eins og það er lagt fram. Við erum algerlega á móti slíkri mismunun.