Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

heilbrigðisstarfsmenn.

987. mál
[14:25]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Eldra fólk er virði en ekki byrði. Hæstv. félagsmálaráðherra blés í lúðra hér fyrir nokkrum dögum og sagði að eldra fólk væri virði en ekki byrði. Heilbrigðisráðherra segir hins vegar að það sé bara minna virði en annað fólk. Það er 11,5% minna virði en annað fólk ef það vinnur í heilbrigðiskerfinu. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur ætlar, frekar en að fullfjármagna heilbrigðiskerfið, frekar en að styðja kvennastéttirnar sem þar vinna með því að efla laun þeirra, að ráða eldra fólk á afslætti, ætlar að sýna vinnandi fólki þá lítilsvirðingu að kaupa það 11,5% ódýrara til að halda uppi brotnu kerfi; kerfi sem þau hafa ekki staðið vörð um í ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Þetta er ólíðandi, frú forseti. Þegar heilbrigðisráðherra kemur síðan hingað upp og segir að hann vilji að þetta nái yfir allan vinnumarkaðinn, og þá verði hægt að taka á þessum lífeyrissjóðsmálum með heildrænum hætti, þá sjáum við hvað þau ætlast fyrir. (Forseti hringir.)

Þau ætla að halda þessum 11,5% afslætti á öllu þessu eldra heilbrigðisstarfsfólki þangað til að búið er að breyta öllu kerfinu. (WÞÞ: Þetta er …)(Forseti hringir.) Þannig að árum saman ætla þau að halda þessari skekkju við (Gripið fram í: Þetta er ekki rétt.) og lítilsvirða eldra fólk á vinnumarkaði (Gripið fram í: Þetta er ekki rétt.) Virði en ekki byrði. Þetta er lítilsvirðing. (Gripið fram í: Þetta er bara rugl.)