heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um mjög mikilvægt frumvarp sem felur í sér heimild til að ráða heilbrigðisstarfsmenn sem náð hafa 70 ára aldri til starfa við heilbrigðisþjónustu sem ríkið veitir frá og með næstu áramótum. Heimildin felur líka í sér umbætur á kjörum og starfsöryggi fólks sem starfar eftir 70 ára aldur og er umtalsverð jákvæð breyting. Það kunna að vera uppi álitamál varðandi lífeyrisgreiðslur og ég skora á hv. þingmenn að lesa greinargerð frumvarpsins áður en (AIJ: Hlustaðu bara á heilbrigðisráðherrann ... ) þeir fara aftur í ræðustól. Hvorki er hróflað við lífeyristökualdri né ellilífeyrisaldri með frumvarpinu en meiri hlutinn telur þó nauðsynlegt að beina því til stjórnvalda að vinna með aðilum vinnumarkaðarins og lífeyrissjóðum að lausn á mögulegum álitamálum. Það eru öll færi til þess að gera það áður en lögin taka gildi.