heilbrigðisstarfsmenn.
Virðulegur forseti. Hér hrópa þingmenn úr þingsal: Þetta er valkvætt. Vissulega er valkvætt að ráða sig í vinnu, það hefur alltaf verið þannig. Við erum ekki í neinum vistarböndum hér á Íslandi, við getum farið í hvaða vinnu sem við viljum, hvenær sem er og á hvaða aldri sem er. En mig langar bara, af því að mér er hlýtt til hæstv. heilbrigðisráðherra, að leggja það til við hann að ef hann ætlar að reyna að ná í fólk þá held ég að það færi betur á því að vera ekki að skerða við það laun. Það hlýtur bara að vera betra ef maður ætlar sér að ná í fólk. Það er einhver ástæða fyrir því að helmingur af heilbrigðismenntuðu fólki er farið úr stéttinni, það er einhver ástæða fyrir því. Ef það á að vera hvati að vinna í heilbrigðiskerfinu að lækka laun, þá held ég að sú tilraun misheppnist algerlega. Ég ætla bara að benda hæstv. heilbrigðisráðherra á það — og þetta er bara vinsamleg ábending — að það er alla vega betra að halda laununum en að skerða þau.