heilbrigðisstarfsmenn.
Frú forseti. Þetta er um margt mikilvægt mál og jákvætt sem við greiðum atkvæði um hér en það er ljóst að það er þessi umfangsmikli galli á málinu. Ef nefndarálit meiri hlutans er lesið þá er meiri hlutinn mjög meðvitaður um það. Það eru einhver tæknileg útfærsluatriði sem valda því, og ég ætla að trúa því, að það verður ekki afgreitt um leið og málið. En til þess að ljúka þessu í sátt og til að enginn velkist í vafa um vilja löggjafans til þess raunverulega að koma til móts við þann hóp sem myndi nýta sér þetta, þ.e. að ganga ekki bara út frá því að fólk á aldrinum 70–75 ára verði sjálfkrafa minna verðmætir starfskraftar, ætla ég að benda á breytingartillögu sem liggur fyrir og er nákvæmlega til þess fallin að koma í veg fyrir eða mæta þessum tæknilegu erfiðleikum við að breyta almannasjóðskerfinu. Ég ætla kannski að biðla til meiri hlutans (Forseti hringir.) að vera ekki algjörlega meðvitundarlaus þegar þau eru á rauða takkanum í þeirri breytingartillögu heldur lesa hvað hún felur í sér. (Forseti hringir.) Hún er lausn á þessu tiltekna máli og má jafnvel gera hana tímabundna þar til hæstv. ríkisstjórn hefur leyst stóra málið. Ég hvet þingheim til að skoða þessa tillögu.