Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

940. mál
[14:34]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ólíkt þeirri afstöðu sem ég hafði í síðasta máli þá fagna ég því að þetta mál sé að koma hér til atkvæðagreiðslu. Þetta er mál sem er búið að vera uppi á borðum verkalýðshreyfingarinnar frá árinu 2019 þegar ASÍ sendi kvörtun til eftirlitsstofnunar EFTA um innleiðingu á tilskipun sem varðar vinnutíma. Sem betur fer hefur verið hlustað á þetta og EFTA sendir athugasemd sem hefur verið tekin til greina. Allir sem hafa veitt umsögn um þetta mál eru sammála því að þetta fari í gegn með þessum hætti, nema þá kannski helst Samtök atvinnulífsins sem höfðu ákveðnar skoðanir á því og töldu að málið væri allt of flókið til að gera þetta með þessum hætti. En öll önnur lönd hafa getað gert þetta. Ég vil lýsa yfir ánægju með að þetta skuli vera að renna hér í gegn.