Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

íþrótta- og æskulýðsstarf.

597. mál
[14:44]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég styð markmið þessa máls og vil ekki gera lítið úr mikilvægi þess. Í umsögn Persónuverndar um þetta mál eru hins vegar gerðar þær athugasemdir að heimildin eins og hún er lögð til sé of víðtæk, ekki sé tekið á aðkomu hins skráða né nógu skýrt til hvaða aðila upplýsingum skuli miðlað og í hvaða tilgangi. Það er lögbundið hlutverk Persónuverndar að m.a. veita Alþingi ráðgjöf á sviði lagasetningar, það er hlutverk sem Alþingi sjálft hefur falið stofnuninni. Í nefndaráliti meiri hlutans er tekið undir skýringar ráðuneytisins á þessu sem eru á þá leið að ráðuneytið sé einfaldlega ósammála Persónuvernd og þetta sé allt bara alveg nógu skýrt og fínt.

Forseti. Ég styð meginmarkmið þessa máls en verð að fara fram á að það verði tekið til umfjöllunar að nýju í allsherjar- og menntamálanefnd til þess að tryggja megi vandaða lagasetningu í þessu mikilvæga máli þannig að tryggt sé að við séum ekki að brjóta á grundvallarréttindum fólks með þeim lögum sem við samþykkjum hér á hinu háa Alþingi. Það er nefnilega Alþingi sem ber ábyrgð á lagasetningu, ekki ráðuneytið.