útlendingar.
Virðulegur forseti. Við greiðum hér atkvæði um mjög mikilvægt mál þótt það láti kannski ekki mikið yfir sér. Þarna erum við að rýmka möguleika fólks utan EES-svæðisins til að koma til Íslands og búa á Íslandi og taka þátt í íslensku samfélagi. Fyrr í vetur afgreiddum við útlendingalögin loksins. Þau voru til þess gerð að auka skilvirkni í þeim málaflokki en ég tel alveg ljóst að það að rýmka möguleika fólks til að koma og taka þátt í íslensku samfélagi muni líka minnka álagið á verndarkerfin okkar.
Það eru ekki öll skref stigin með þessu frumvarpi sem hér er. Enn er að störfum ráðherranefnd sem er að fara yfir það hvernig við gætum rýmkað þessi réttindi enn frekar og ég held að það sé mjög mikilvægt og ég brýni ráðherrana áfram í þeirri vinnu. En það er vissulega fagnaðarefni að við getum klárað þetta hér í dag.