almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, og lögum um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, með síðari breytingum. Í frumvarpinu felast tillögur að mótvægisaðgerðum til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör og kaupmátt viðkvæmustu hópa samfélagsins.
Meginefni frumvarpsins varðar 2,5% hækkun bóta samkvæmt lögum um almannatryggingar og lögum um félagslega aðstoð frá 1. júlí nk. að telja. Einnig er í frumvarpinu gert ráð fyrir að samhliða hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar muni frítekjumörk húsnæðisbóta fyrir þann sem býr einn hækka um 2,5% en frítekjumörk heimila með tvo eða fleiri heimilismenn munu hækka jafnframt í samræmi við stuðla húsnæðisbóta. Er í frumvarpinu lagt til að hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta taki gildi með afturvirkum hætti frá 1. janúar 2023 til að unnt verði að framkvæma lokauppgjör og leiðréttingu húsnæðisbóta í samræmi við lög um húsnæðisbætur.
Þá vil ég leggja áherslu á að verði frumvarp þetta að lögum mun ég einnig hækka framfærsluviðmið örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega vegna sérstakrar uppbótar á lífeyri vegna framfærslu um 2,5% frá 1. júlí. Verður það gert með reglugerð og því ekki þörf á að gera breytingar á lögum um félagslega aðstoð. Með því móti verður tryggt að hækkunin nýtist mest þeim örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegum sem lægstar hafa tekjurnar. Er í því sambandi einnig mikilvægt að halda því til haga að meiri hluti þeirra sem fær greidda sérstaka uppbót vegna framfærslu eru konur og er hlutfall kvenna sem munu fái hærri greiðslur um 63% á móti 37% karla.
Greiðslur til elli- og örorkulífeyrisþega og annarra greiðsluþega Tryggingastofnunar ríkisins hækkuðu um 7,4% um síðustu áramót í fjárlögum fyrir árið 2023. Hækkunin sem nú er áformuð er því viðbót við þá hækkun og er tilefni breytinganna að milda áhrif aukinnar verðbólgu á lífskjör elli- og örorku-lífeyrisþega og annarra sem þiggja bætur almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar.
Eins og flestum ætti að vera kunnugt hefur verðbólgan í ár reynst bæði hærri og þrálátari en í forsendum fjárlaga fyrir árið 2023 og spáir Seðlabanki Íslands nú 8,8% verðbólgu á yfirstandandi ári. Mikilvægt þykir því að tryggja að þeir hópar sem hér er sjónum beint að verði ekki fyrir kaupmáttarrýrnun síðar á árinu, eins og stefnir í að gerast ef verðbólguspá Seðlabankans gengur eftir.
Heimili eru í ólíkri stöðu til að takast á við vaxta- og verðlagshækkanir og líklegt að hærri verðbólga rýri lífskjör viðkvæmra hópa talsvert meira en annarra. Þess vegna er í frumvarpi þessu sérstaklega horft til þess að draga úr áhrifum verðbólgu á viðkvæmustu hópa samfélagsins, þ.e. aldraðra, öryrkja og einstaklinga á leigumarkaði sem fá húsnæðisbætur, og lagðar til mótvægisaðgerðir sem fela í sér hækkun á greiðslum almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar um 2,5% frá 1. júlí 2023 auk 2,5% hækkunar frítekjumarka húsnæðisbóta frá 1. janúar sl., líkt og áður er getið.
Varðandi mat á áhrifum tillagna frumvarpsins þá er kostnaður ríkissjóðs af hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar um 2,5% frá 1. júlí 2023 áætlaður um 3,3 milljarðar kr. á árinu 2023 og um 6 milljarðar kr. á ársgrundvelli. Gert er ráð fyrir að 2,5% hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta til samræmis við hækkun bóta almannatrygginga taki gildi með afturvirkum hætti frá 1. janúar 2023 þar sem ekki er unnt að framkvæma lokauppgjör og leiðréttingu húsnæðisbóta samkvæmt lögum um húsnæðisbætur ef miðað yrði við mismunandi frítekjumörk innan almanaksársins. Kostnaður við hækkunina nemur um 110–130 millj. kr. á yfirstandandi ári.
Virðulegi forseti. Hækkun bóta almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar styrkir stöðu tekjulægstu hópa samfélagsins og styður þannig við jafna stöðu kynjanna. Ólík staða karla og kvenna í þjóðfélaginu endurspeglast í mismunandi greiðslum til þeirra frá almannatryggingum. Þau sem fá lágar eða engar tekjur af atvinnu eða greiðslur úr lífeyrissjóðakerfinu fá hærri greiðslur frá almannatryggingum og í formi félagslegrar aðstoðar. Almannatryggingakerfið stuðlar þannig að tekjujöfnuði og nýtist fremur konum en körlum þar sem þær eru almennt með lægri tekjur aðrar en greiðslur frá almannatryggingum sér til framfærslu. Konur eru að jafnaði tvöfalt fleiri en karlar meðal öryrkja og hafa síður atvinnutekjur. Þá sýna rannsóknir að aldraðar konur hafa almennt lægri tekjur en aldraðir karlar.
Hækkun frítekjumarka húsnæðisbóta er til þess fallin að styðja við tekjulægstu hópa leigjenda. Viðtakendur húsnæðisbóta eru að meiri hluta til barnlaus heimili. Hlutfall kvenna og karla í þeim hópi er nokkuð jafnt enda þótt konur séu líklegri en karlar til að vera á leigumarkaði. Sé litið til heimila þar sem fyrir hendi er einn fullorðinn ásamt börnum er hinn fullorðni aftur á móti í yfirgnæfandi meiri hluta kona. Gera verður ráð fyrir að hér sé einkum um að ræða einstæða foreldra en algengast er að heimili einstæðra foreldra með börn skorti efnisleg lífsgæði. Verði frumvarp þetta að lögum munu þær breytingar sem lagðar eru til á húsnæðisbótum því ekki síst koma til með að nýtast einstæðum mæðrum.
Virðulegi forseti. Ég hef hér rakið það hvað felist aðallega í því frumvarpi sem hér er til umfjöllunar og varðar breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um húsnæðisbætur. Málið er brýnt og mikilvægt að klára það fyrir þinglok svo hækkun bóta almannatrygginga nýtist frá og með 1. júlí nk. Þannig tryggjum við að þeir viðkvæmu hópar sem hér er um ræðir, einstaklingar á leigumarkaði sem þiggja húsnæðisbætur, aldraðir, öryrkjar og aðrir sem reiða sig á almannakerfið, fái þá réttarbót sem mælt er fyrir í frumvarpi þessu þegar um næstu mánaðamót.
Virðulegur forseti. Að þessu sögðu vil ég leggja til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.