almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Frú forseti. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við stjórnartaumunum á Íslandi í árslok 2017 og síðan hafa liðið fimm heil fjárlagaár. Á hverju einasta ári hefur óskertur ellilífeyrir hækkað miklu minna en bæði launavísitala og lágmarkslaun og á fjórum af fimm árum hækkaði óskertur örorkulífeyrir minna en launavísitala og lágmarkslaun. Það sem gerðist svo í fyrra var að ellilífeyrir hækkaði minna en vísitala neysluverðs, þvert á skýr ákvæði almannatryggingalaga um að þetta megi ekki gerast. Verðlagsvísitalan hækkaði um 8,3% á árinu en ellilífeyrir hækkaði um 7,7%. Þessi 3% verðbólguvörn sem var farið í á miðju ári dugði ekki til. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Er hann sannfærður um að 2,5% verðbólguvörn muni duga núna til þess að verja kaupmátt eftirlaunafólks á þessu ári? Ef ekki, hvernig verður þá brugðist við? Og verður þá örugglega brugðist við strax í fjárlögum næsta árs, strax í upphafi árs, til að leiðrétta það þegar verðbólgan fer fram úr kjörum eldra fólks þrátt fyrir þá verðbólguvörn sem hér er verið að boða?