Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:04]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það eru ýmsar aðgerðir sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur ráðist í, bæði sem tengjast örorkulífeyrisþegum og eldra fólki, sem er svo sem ekki tilefni andsvars hv. þingmanns, en mér þykir rétt að minna okkur á það engu að síður. Þar getum við nefnt sem dæmi að hér hefur sérstaklega verið komið á félagslegum viðbótarstuðningi fyrir eldra fólk sem hefur skipt mjög miklu máli, það hefur verið dregið úr skerðingum í örorkulífeyriskerfinu, og það eru fleiri aðgerðir sem gripið hefur verið til, einnig ákveðnar hækkanir sem þar hafa orðið.

Hv. þingmaður spyr hvort það sé mat ráðherra að þessi 2,5% hækkun sé nægjanleg til að verja kaupmátt. Það er mat okkar að svo sé. Gleymum því ekki að hér voru bætur almannatrygginga hækkaðar um 7,4% um síðustu áramót. Þetta er viðbótarhækkun nú um mitt ár sem einmitt á að tryggja að kaupmáttur rýrni ekki en það stefnir í að hann rýrni, verði ekki gripið til þessarar ráðstöfunar. Um síðustu áramót var hluti af þeirri hækkun sem var gerð til bóta almannatrygginga til að taka mið af aukinni verðbólgu á síðasta ári miðað við forsendur fjárlaga þessa árs — og við þurfum að horfa til þess hvort þetta muni nægja, ég tek undir það með hv. þingmanni. Það er eitthvað sem við vitum væntanlega meira um í haust en vonandi eru nýjustu verðbólgutölur sem við sjáum vísbending um að verðbólga sé á niðurleið.