Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:06]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessi svör og við jafnaðarmenn munum auðvitað fylgjast glöggt með þróun á greiðslum almannatrygginga næstu árin og halda áfram að halda hæstv. ráðherra við efnið.

Nú segir í 62. gr. almannatryggingalaga, sem áður var 69. gr., að ákvörðun fjárhæða skuli taka mið af launaþróun. Þrátt fyrir þetta liggur alveg fyrir að frá því að þessi ríkisstjórn tók við árið 2017 hefur launavísitala hækkað miklu meira en greiðslur almannatrygginga. Það sama á við um lágmarkslaun í landinu ef við miðum bara við þau.

Ég spyr hæstv. ráðherra, vegna þess að mér finnst við vissulega vera á réttri leið með að tryggja svona verðbólguvörn á miðju ári þótt það hafi ekki dugað til í fyrra: Hefur hæstv. ráðherra einhverja tryggingu fyrir því að horfið verði af þessari braut síðustu ára nú á þessum síðustu tveimur árum þessa kjörtímabils þar sem launavísitala og lágmarkslaun hækka nær undantekningarlaust meira en nemur kjarabót öryrkja og ellilífeyrisþega? Nú er þetta auðvitað á borði fjármálaráðherra. Hefur hæstv. félagsmálaráðherra einhverja tryggingu fyrir því að sú kjaragliðnun sem hér hefur verið lýst verði stöðvuð og mun hann berja í borðið á ríkisstjórnarfundum ef t.d. kemur í ljós að verðbólguvörnin sem hér er verið að setja inn dugar ekki til fyrir þetta ár? Verður þá tryggt strax á næsta ári að það verði bætt upp?