Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:08]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni andsvarið. Það sem við höfum séð á undanförnum árum er að krónutöluhækkanir hafa verið það háar að þær hafa verið með öðrum hætti en prósentutöluhækkanir eins og við þekkjum. Ef við horfum til neysluvísitölu sjáum við aðrar tölur. Ef við horfum til launavísitölu sjáum við enn aðrar tölur. Það sem hér er verið að gera, eins og hér hefur komið fram, er að verja kaupmáttinn. Auðvitað vonumst við til þess að þetta verði nóg. Við tökum þetta til endurskoðunar við gerð fjárlaga í haust, væntanlega á milli 1. og 2. umr., geri ég ráð fyrir, líkt og gert var í fyrra og oft hefur verið gert áður og ég mun að sjálfsögðu berjast fyrir betri kjörum öryrkja og eldra fólks hér eftir sem hingað til. Ég er mjög ánægður með það að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur skuli vera að setja inn hækkun um mitt ár þegar það stefnir í kaupmáttarrýrnun vegna þess að það er nýmæli, nema að við gerðum það líka í fyrra. Það er mikilvægt vegna þess að safnast þegar saman kemur og það er hálfu ári fyrr en annars hefði verið. Ég fagna því þannig mjög að við séum að koma fram með þetta frumvarp hér, það er liður í því að standa vörð um kjör eldra fólks og öryrkja.