Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:10]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Af því að hæstv. félagsmálaráðherra er hér að tala fyrir aðgerðum og viðbragði vegna verðbólgunnar, þessa kafla sem er að lengjast, þá bara get ég ekki annað en spurt hann út í fréttatilkynningu frá ríkisstjórninni í gær. Hér birtist viðbragð, gott og vel. Gott og vel að sjá viðbragð sem á að vernda viðkvæmustu hópa samfélagsins. Það held ég að við hljótum öll að styðja heils hugar. Á sama tíma birtist okkur hér, frá sömu ríkisstjórn og leggur þetta mál núna fram, fullkomin uppgjöf gagnvart stóra verkefninu sem er að ráða bug á verðbólgunni og afleiðingum hennar fyrir fólkið í landinu, fullkomin uppgjöf. Ég verð að segja eins og er að mér er svo misboðið eftir að hafa setið á fundi fjárlaganefndar í morgun og séð, eftir fréttatilkynningar, eftir stórar yfirlýsingar, staðfest á prenti að engar breytingar verða gerðar á fjármálaáætlun, ekki nokkrar einustu. Ég spyr ráðherra, því að hann fer nú með vinnumarkaðsmálin líka, það mun hafa áhrif í haust ef verðbólgan fer ekki niður: Er það markmið ríkisstjórnarinnar, búast ráðherrar þessarar ríkisstjórnar við því, að næsta stýrivaxtahækkun verði þeim í vil, sýni hreyfingu í rétta átt í kjölfar þessara aðgerða? Býst hann við því að fjármálaáætlunin, eins og hún liggur fyrir, óbreytt, muni hafa áhrif á verðbólgu og vaxtaákvarðanir? Sú næsta verður tekin núna í ágústmánuði.