Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:12]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég vil nú byrja á að fagna því að hv. þingmaður sé sammála frumvarpinu sem hér er komið fram. Það er mjög jákvætt. Ég vil líka minna á að þetta er auðvitað ekki það eina sem ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur gripið til þegar kemur að því að verja kjör þeirra hópa í samfélaginu sem tekjulægstir eru. Ég vil bara minna á að um síðustu áramót voru bæði bætur almannatrygginga hækkaðar og frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega, húsaleigubætur sem höfðu þá verið hækkaðar um mitt síðasta ár þannig að á einu eða á hálfu ári var það um fjórðungur sem þau hækkuðu, eignamörk í vaxtabótakerfinu (ÞorbG: Það var ekki spurningin.) voru hækkuð í byrjun árs, barnabætur og persónuafsláttur og þrepamörk hækkuðu líka um síðustu áramót.

Hér sagði hv. þingmaður að það væri fullkomin uppgjöf hjá ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur. Ég er að benda á það sem þegar hefur verið gert sem hlýtur að skipta máli inn í þá umræðu. Hvað erum við að gera núna? Það er mjög mikilvægt að við erum að flýta fjármálareglunum, sem var veigamesta atriðið í umsögnum þeirra aðila sem veittu umsagnir við fjármálaáætlun. Þetta verður gert með lagabreytingum í haust. Það er verið að færa fjárfestingar yfir í íbúðarhúsnæði. Ég held að við getum öll verið sammála um að það sé jákvæð þróun. Það er verið að útfæra aðhald. Það er verið að boða lagabreytingar um heimagistingu og leigumarkað. Það er verið að lækka laun æðstu ráðamanna samfélagsins og svo erum við að hækka hér bætur. Ég vil segja það að fjármálaáætlunin sem lögð var fram í lok mars var góð, hún er enn góð en hún er enn betri eftir þær breytingar sem hér er verið að boða. (Gripið fram í.)