Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:15]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er af ástæðu sem hæstv. ráðherra svarar ekki spurningunni því hann veit svarið. Fjármálaáætlunin eins og hún lítur út núna mun ekki hafa jákvæð áhrif á verðbólgu, mun ekki hafa jákvæð áhrif hvað vaxtahækkanir varðar. Þess vegna svarar hæstv. ráðherra ekki spurningum mínum. Að fjármálaáætlunin sé betri en sú sem var lögð fram í mars — þetta er sama áætlunin með engum breytingum. Það er eitthvert hjal um að lækka ferðakostnað; hlutir sem breyttust í heimsfaraldri, var talað um í síðustu fjárlögum, var talað um í marsmánuði og aftur núna. Fullkomin uppgjöf gagnvart stóra verkefninu er niðurstaðan. Ráðherra getur staðið hér og talað sig hásan um viðbrögð, um plástrana en hann er ekki að gera neitt til að takast á við verðbólguna sjálfa og afleiðingar hennar. Sá hópur sem hann er hér að tala fyrir í dag mun finna fyrir því. Það mun reyndar millistéttin líka gera, fólkið sem er að taka á sig allar vaxtahækkanirnar og er algerlega skilið eftir á berangri í boði þessarar ríkisstjórnar.