Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:16]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv þingmaður gerði athugasemd við það áðan hvernig ég svaraði, af því að hv. þingmaður ætlar náttúrlega að fá að ráða því hvernig sá sem hér stendur svarar. (ÞorbG: Ég spurði ákveðinnar spurningar.) Það sem ég sagði í ræðustól áðan var að ég var að telja upp fjölmörg atriði þar sem gripið var til aðgerða um síðustu áramót sem munu skipta máli við þær efnahagsaðstæður sem nú eru.

Spurning hv. þingmanns snerist um það hvort sá sem hér stendur telji að þetta muni hafa áhrif á næstu stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands. Ég vona að þetta hafi áhrif í jákvæða átt. Ég vona að við séum búin að sjá hæsta kúfinn á verðbólgunni sem ég tel að hv. þingmaður hljóti að vera sammála mér um að sé eitthvað sem við vonumst til og að þær breytingar sem hér eru gerðar, og ég rakti bara alveg ágætlega hér áðan, séu bæði til þess að slá á þenslu og að þær séu líka mikilvægar þegar kemur að væntingum. Þar vil ég kannski nefna veigamesta atriðið sem var í umsögnunum, m.a. hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og hjá fjármálaráði, sem var varðandi flýtingu fjármálareglna.