Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:18]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Heil 2,5% hækkun sem skilar 8.000 kr. til flestra, 5.000 kr. eftir skatta. Þá eru skerðingarnar eftir. Það er að skella á í haust — hjá þeim aðilum sem urðu fyrir skerðingum í almannatryggingakerfinu eru 49.000 einstaklingar og meðalskerðing 164.000 kr. eða um 15.000 kr. á mánuði. 5.000 kr. duga skammt upp í það og sérstaklega ef viðkomandi lendir í keðjuverkandi skerðingum. Aðili sem er í þeirri aðstöðu og hefur sýnt fram á að húsaleiga hefur hækkað hjá honum um nær 60.000 kr. á skömmum tíma er í mjög slæmum málum. Sú hækkun sem þar er boðuð skilar litlu fyrir þessa einstaklinga. Ég spyr því hæstv. ráðherra: Verður ekki að gera eitthvað betur en þetta? Þetta er mjög gott fyrir þá sem lenda ekki í skerðingum. Það er ágætt, þá ná þeir nokkurn veginn að verða undir verðbólgu og verða ekki fyrir skerðingum. En hinir sem verða fyrir keðjuverkandi skerðingum — við vitum að þeir sem verst lenda í þessu kerfi mega þakka fyrir að halda 2 kr. af hverjum 10 sem fara inn í þetta og ég spyr: Kom aldrei til greina að reyna þá alla vega á einhvern hátt að koma með eingreiðslu líka þannig að það væri a.m.k. verið að hjálpa þeim verst settu eitthvað smá, sérstaklega þeim sem lenda í þessum keðjuverkandi skerðingum og þetta skilar svo til engu fyrir?