Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:20]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það má kannski segja að það aukist ekki skerðingar við hækkunina. Ef búið er að taka tillit til tekna sem ekki eru að aukast mun skerðingin ekki hækka við óbreyttar aðrar tekjur þó að bæturnar hækki, þ.e. bætur almannatrygginga skerðast ekki innan frá, ef við getum orðað það þannig. Við megum ekki gleyma því að sú hækkun sem hér er verið að boða, og ég þykist nú vita að við verðum öll sammála um að greiða henni atkvæði okkar, er til að verja kaupmátt eldra fólks og örorkulífeyrisþega sem eru á bótum almannatrygginga.

Ég held að það sé líka mjög mikilvægt að við gleymum því ekki að við erum að verja húsaleigubæturnar, þ.e. að þær muni ekki skerðast vegna þessarar hækkunar. Það er mjög mikilvægt atriði. Það mun nýtast fleirum en bara þeim sem eru á bótum almannatrygginga. Það mun líka nýtast þeim sem njóta húsaleigubóta og hafa einhverjar tekjur, af því að frítekjumark húsnæðisbóta er að hækka.

Síðan getum við auðvitað talað um það hvort 2,5% sé mikið eða lítið. Ég held að það sé kannski umræða sem ég vil frekar beina út í það að við erum með þessari hækkun að verja kaupmáttinn, við megum ekki gleyma því. Það er markmiðið með þessu og ég legg áherslu á það hér.