almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Virðulegur forseti. Þetta skerðingarkerfi veldur því að þegar fólk fær, að því er talið er, of miklar tekjur þannig að það þarf að skerða það ár aftur í tímann í Tryggingastofnun þá hefur það áhrif á alla bótaflokka, þegar fólk hækkar svona gífurlega í tekjum sem það þarf síðan að greiða til baka. Á sama tíma eru þessar hækkanir að skerða sérstakar húsaleigubætur og ýmsar bætur.
Ráðherra talar um að það eigi að spýta í í sambandi við húsnæði og ég spyr hann: Hvað sér hann fyrir sér og hvernig ætlar hann að taka á þeim vanda sem hefur verið viðloðandi hérna áratugum saman? Það er það að hópur fatlaðs fólks hefur beðið áratugum saman eftir húsnæði. Síðan erum við með félagslegt húsnæði, eins og hjá Brynju leigufélagi og fleirum, þar sem eru þvílíkir biðlistar og hafa verið árum og áratugum saman. Ég sé ekki hvernig ríkisstjórnin ætlar að hjálpa þessum hóp og hvort hún hefur eitthvert plan. Það segir sig sjálft að þegar einstaklingur sýnir fram á að húsaleigan hefur hækkað um 60.000 kr. og er komin 15.000–20.000 kr. yfir framfærslu þá á viðkomandi einstaklingur engan séns á því að leigja viðkomandi húsnæði og þarf að fara út og lendir þar af leiðandi í frumskógi hárrar leigu eins og markaðurinn í dag og hefur ekki í nein hús að venda. Ég spyr: Er hæstv. ráðherra með lausn á því?