Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:24]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Mig langar að nefna það varðandi sérstakar húsaleigubætur sveitarfélaganna að við munum að sjálfsögðu senda þeim bréf, verði þetta frumvarp að lögum, til að biðla til þeirra eða ýta við þeim að gera viðeigandi ráðstafanir þannig að þessar hækkanir muni ekki valda skerðingum þar.

Hv. þingmaður kemur síðan inn á húsnæðismál fatlaðs fólks. Ég held að við getum öll verið sammála um að þar eru biðlistar allt of langir. Auðvitað er það eitthvað sem heyrir meira undir sveitarfélögin en þrátt fyrir það má kannski nefna tvennt sem skiptir máli í aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Það er í fyrsta lagi rammasamningurinn, sem hæstv. innviðaráðherra hefur verið að gera við sveitarfélögin, sem er að tryggja að ákveðið hlutfall af þeim íbúðum sem byggðar verði með stuðningi ríkisins sé félagslegt húsnæði og það mun að einhverju leyti nýtast fötluðu fólki. Í öðru lagi langar mig að nefna þær breytingar sem við erum að gera núna varðandi fjármálaáætlunina og snýr að húsnæðismálunum, þ.e. að tvöfalda í raun framlög til almenna íbúðakerfisins með auknum stofnframlögum sem koma sér auðvitað vel fyrir þau sem eru tekjulægri í samfélaginu.