Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:26]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Það eru auðvitað stór tíðindi sem komu fram af hálfu hæstv. ráðherra rétt áðan um að það verði gerðar breytingar á fjármálaáætlun vegna þess að rétt áðan var dreift nefndaráliti frá meiri hluta fjárlaganefndar þar sem kemur skýrt fram að lagt er til að áætlunin verði samþykkt óbreytt. Það er t.d. ekki farið að ráðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varðandi aukið aðhald á næstu árum og flýtingin á gildistöku fjármálareglnanna hefur engin áhrif á rammana í fjármálaáætlun og engin breyting hefur enn sem komið er verið lögð til. En mér heyrist hæstv. ráðherra boða einhvers konar breytingar. .Ætli við fáum ekki að sjá enn eina fréttatilkynninguna í dag, sem vonandi hefur þá í för með sér einhverjar raunverulegar breytingar vegna þess að þær breytingar sem var trommað upp með í gær um 36 milljarða aðhald reyndust blekking. Það var ekkert viðbótaraðhald boðað í gær.

Hér ræðum við frumvarp um mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu. Hér er ráðist í mikilvæga aðgerð fyrir fólk sem reiðir sig á almannatryggingakerfið. Mig langar kannski aðeins að fara yfir samhengi hlutanna varðandi almannatryggingamálin áður en ég kem inn á þessa tilteknu aðgerð. Nú er það auðvitað þannig að skv. 62. gr. laga um almannatryggingar, sem áður var 69. gr., skulu greiðslur almannatrygginga breytast árlega í samræmi við fjárlög og ákvörðun þeirra á að taka mið af launaþróun, þó þannig að greiðslurnar hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.

Nú er það bara staðreynd að frá því að hæstv. ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum á Íslandi hefur óskertur ellilífeyrir hækkað miklu minna en bæði launavísitala og lágmarkslaun. Svona hefur þróunin eiginlega verið á hverju einasta ári. Alltaf er hækkunin minni á ellilífeyri en á launavísitölu og lágmarkslaunum og á fjórum af fimm árum hefur hækkun launavísitölu og lágmarkslauna verið meiri en hækkun örorkulífeyris. Hvort sem við miðum við óskertan örorkulífeyri, t.d. bara sérstöku framfærsluuppbótina, eða gefum okkur ákveðnar forsendur, t.d. um manneskju sem býr ein, fékk örorkumat 40 ára o.s.frv., þá er þetta alltaf niðurstaðan. Þannig hefur þróunin verið á undanförnum árum og þetta er auðvitað ekki í samræmi við 62. gr. laganna sem áður var 69. gr. Það er staðreynd. Við í Samfylkingunni munum auðvitað brýna hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra til dáða að leiðrétta þetta og í það allra minnsta stöðva þessa kjaragliðnun sem svo hefur verið kölluð.

Sú verðbólguvörn sem var kynnt hér á síðasta ári dugði ekki til að verja kaupmátt ellilífeyrisþega. Ég man ekki hvort hún rétt dugði til að verja kaupmáttinn hjá örorkulífeyrisþegum, ég er með þetta í excel-skjali, jú, rétt dugði til þess, en kaupmáttur ellilífeyrisþega rýrnaði á síðasta ári. Ég held að það sé mjög mikilvægt þegar við ræðum þessa verðbólguvörn hér, sem er hóflegri um mitt ár 2023 en hún var 2022 — núna erum við að gera ráð fyrir 2,5% hækkun en það voru 3% á síðasta ári — að við höldum vöku okkar og leiðréttum það ef þetta dugar ekki til, þá strax í næstu fjárlögum. Þar munum við auðvitað halda félags- og vinnumarkaðsráðherra við efnið og hann á stuðning okkar jafnaðarmanna að sjálfsögðu.

Við höfum í huga í þessu samhengi að það finnst varla það land í heiminum þar sem tekjutengdar skerðingar eru eins miklar og á Íslandi. Kannski er engin tilviljun einmitt að ójöfnuður meðal eldri borgara er meiri á Íslandi en meðal almennings almennt, ólíkt því sem tíðkast í flestum nágrannalöndum okkar, t.d. í Noregi, Danmörku og Finnlandi þar sem þessu er öfugt farið. Þetta bendir til þess að skerðingarnar, sem eru alla jafna réttlættar út frá einhvers konar jafnaðarsjónarmiðum, að það eigi að tryggja að greiðslur almannatrygginga renni ekki í of ríkum mæli upp tekjustigann — þetta sýnir að kerfið er ekki að ná því markmiði að stuðla að miklum jöfnuði meðal eldra fólks og þá kannski fyrst og fremst vegna þess að tekjuskerðingarnar byrja svo neðarlega í tekjustiganum.

Ég hef tekið sem dæmi eldri konu sem býr ein, segjum að hún hafi alið börn, rekið heimili, unnið slítandi störf á allt of lágum launum en engu að síður náð að safna sér lífeyrisréttindum upp á 150.000 kr. á mánuði. Þetta er mjög raunhæft dæmi, nota bene. Þegar ég hef sýnt þessar tölur á facebook þá koma alltaf þó nokkrar athugasemdir undir þar sem stendur: Ég er þessi kona. Þetta er bara raunveruleiki sem venjulegt fólk tengir við. Segjum að þessi kona hafi náð að safna sér lífeyrisréttindum upp á 150.000 kr. á mánuði. Hvað stendur þá eftir þegar hún fer á eftirlaun, þ.e. sem auknar ráðstöfunartekjur? Svarið er 50.000 kr. Aðeins þriðjungurinn af þessum 150.000 kr. situr eftir sem auknar ráðstöfunartekjur hjá konunni í hverjum mánuði. Ríkið tekur þá restina í formi skatta og skerðinga.

Þetta er auðvitað til marks um það að tekjuskerðingarnar, og ég ætla alls ekki að halda því fram að kerfið eigi að vera algerlega skerðingarlaust eins og sumir tala um, byrja að bíta allt of neðarlega í tekjustiganum. Ég held að fólkinu í landinu finnist þetta kerfi einfaldlega óréttlátt. Við erum að tala um jaðarskattbyrði af 150.000 kr. lífeyrisréttindum sem er 67%. Ég held að þetta sé ekki það sem lagt var upp með þegar almennu lífeyrissjóðunum var komið á fót í kjölfar kjarasamninga 1969, að greiðslur úr lífeyrissjóðunum yrðu dregnar svo rækilega frá greiðslum almannatrygginga að ríkið sjálft yrði í raun stóri lífeyrisþegi lífeyrissjóðanna.

Við ræðum hér frumvarp um mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu. Það er góðra gjalda vert og við styðjum það að stutt sé við fólk sem reiðir sig á almannatryggingakerfið. Þörfin er þar auðvitað gríðarleg hjá öryrkjum og líka hjá hluta eldri borgara, hjá tekjulægri eldri borgurum. En það eru fleiri hópar í vanda vegna verðbólgunnar og vegna afleiddra áhrifa verðbólgunnar sem birtast auðvitað fyrst og fremst í mjög skörpum vaxtahækkunum sem hafa komið mjög harkalega niður á heimilum og kannski einna helst þeim sem tóku óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum þegar vextir voru hvað lægstir.

Ef við skoðum bara nýjustu mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá því núna í maí þá reiknast þeim til að greiðslubyrði af 40 millj. kr. óverðtryggðu láni til 40 ára hafi verið 326.000 kr. Ári áður, í júní 2022, var greiðslubyrðin af slíku láni 204.000 kr. og árið þar áður var greiðslubyrðin 155.000 kr. Þetta er gríðarleg hækkun á greiðslubyrði á skömmum tíma, úr 155.000 kr. upp í 326.000 kr. á tveimur árum.

Þetta eru ekki bara einhverjar tölur í excel-skjali heldur er raunverulegt fólk á bak við þetta. Það var ágætisumfjöllun um þetta í nýjasta tölublaði Heimildarinnar. Þar er t.d. rætt við par með fjögur börn sem býr í blokkaríbúð. Í byrjun síðasta árs greiddi fjölskyldan tæpar 200.000 kr. af óverðtryggðu íbúðaláni í hverjum mánuði en afborgunin nú í júní er farin úr 200.000 kr. upp í 315.000. Í sama blaði og sömu umfjöllun er rætt við par sem keypti fasteign í fyrra, var þá með 300.000 kr. í mánaðarlega greiðslubyrði en greiðir í dag 388.000 kr. á mánuði. Svo er rætt við einstakling með íbúðalán þar sem greiðslubyrðin hefur hækkað úr 140.000 kr. upp í 200.000 kr. Á sama tímabili missti þessi einstaklingur vinnuna og finnur þá auðvitað fyrir því að atvinnuleysisbætur hafa rýrnað talsvert að raunvirði.

Ég las líka frétt á mbl.is þar sem rætt er við mann sem keypti blokkaríbúð í Breiðholti ásamt konu sinni í september fyrir óverðtryggt lán á breytilegum vöxtum. Fyrst var afborgunin 300.000 kr. á mánuði, svo hefur hún stökkbreyst og er komin upp í 450.000 kr. „Mig langaði bara að gráta“, er haft eftir honum í umfjölluninni. „Það versta við þetta er að þú hefur ekkert val. […] Ég þarf að vinna eins mikið og ég get til að borga reikningana. Ég get ekki farið í frí með fjölskyldunni, ég get ekki keypt neitt og eins og þú sérð eru veggirnir auðir. Það er ekkert hér. Allir peningarnir fara í reikninga til að lifa af.“

Hér erum við að tala um einstakling sem er á vinnumarkaði, hann reiðir sig ekki á almannatryggingakerfið. Mér finnst þetta sýna ágætlega að það þarf bara að hugsa þetta aðeins lengra og í stærra samhengi. Það er mjög mikilvægt að tryggja verðbólguvörn fyrir fólk sem reiðir sig á almannatryggingakerfið og við styðjum það. En svo þarf líka að huga að ýmsum öðrum hópum, m.a. tekjulágu fólki á vinnumarkaði sem er að sjá greiðslubyrðina rjúka upp úr öllu valdi. Þessir hópar finna fyrir því að það er búið að láta vaxtabótakerfið grotna niður á undanförnum árum.

Þegar við nefnum þetta tala ríkisstjórnarflokkarnir yfirleitt um 50% hækkun á eignarskerðingarmörkum vaxtabóta frá því í desember síðastliðnum. Það er einmitt aðgerð sem við í Samfylkingunni lögðum til og höfðum þá talað fyrir mánuðum saman, aðgerð sem við lögðum til og lögðum fram sem breytingartillögu við fjárlagabandorm ríkisstjórnarinnar og fengum samþykkta, sem er vel. En ég held í ljósi þessa ástands, sem ríkisstjórnin viðurkennir nú loksins að þurfi að bregðast við með einhverjum hætti fyrir ákveðna hópa, að þá væri við hæfi að skoða líka vaxtabótakerfið, láta eignarskerðingarmörkin áfram fylgja upp að einhverju marki þróun fasteignaverðs, og þá helst, vegna bráðavanda á þessu ári, greiða út einhvers konar vaxtabótaauka eða sérstaka vaxtaniðurgreiðslu eins og var farið í 2011 og 2012 þegar vaxtastigið var á svipuðum slóðum og það er núna.

Að lokum vil ég bara segja að mér finnst ekki fara vel á því hvernig ráðamenn eru stöðugt — og ég er ekkert sérstaklega að saka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra um þetta, ég hef reyndar ekki heyrt þetta frá honum — að tala niður vanda fólks og þá alla jafna með vísan til einhverra gamalla talna, oft kannski eins eða tveggja ára gamalla talna um stöðu heimilanna. Ég nefndi hér þó nokkur dæmi um fólk sem er að verða fyrir gríðarlegu höggi í sínu daglega lífi og ég held að við verðum bara aðeins að sýna ákveðna auðmýkt gagnvart því og tala saman um það hvernig hægt er að bregðast við en ekki vera sífellt, eins og gerðist í gær, með einhverjar brellur í fjölmiðlum. Ég held að ríkisstjórnin ætti kannski að tala aðeins minna við einhverja almannatengla um það hvernig hún geti aukið vinsældir sínar með því að senda út snjalla fréttatilkynningu og matreiða hluti sem áður hefur verið ráðist í eins og um eitthvað nýtt sé að ræða og tala kannski meira við fólk, sem ég var að lesa upp úr viðtölum við í fjölmiðlum, sem er að verða fyrir gríðarlegu höggi vegna hækkandi greiðslubyrði, bæði vegna verðbólgunnar sjálfrar og vegna afleiddra áhrifa af henni.