Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:41]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að það eigi að tala um hlutina eins og þeir eru og ekki vera með einhverjar brellur í málflutningi og það tel ég hæstv. ríkisstjórn svo sannarlega ekki hafa verið með. En ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hljóðs og ákvað að koma upp í andsvar við hv. þingmann eru útúrsnúningar á máli hæstv. ráðherra um að hann hafi hér verið að vísa í breytingar á fjármálaáætlun. Af samhengi, og ég sat í þingsal og hlustaði á ræðu hæstv. ráðherra, var alveg ljóst að verið var að vísa til breytinga sem er verið að boða á öðrum lögum sem kalla ekki á breytingar á fjármálaáætlun, til að mynda boðaðar breytingar á heimagistingu og á leigumarkaði, bara svo ég nefni einhver dæmi.

Fjármálaáætlun er góð og þar er verið að flytja aðgerðir til, verið að breyta áherslum en það er hægt að gera án þess að leggja til breytingar á henni sérstaklega. En svo er líka verið að boða aðrar lagabreytingar og það er gott. Frumvarpið sem við ræðum hér í dag tengist því. Það verða fleiri frumvörp hér á næstu dögum, m.a. hvað varðar launakjör okkar og fleiri sem eru í efri skala tekjustigans.

Að lokum vil ég þó taka undir það sem líka kom fram í máli hv. þingmanns sem var, að því er mér skildist, ekki annað en að hann styðji þetta frumvarp og því fagna ég. En mér fannst ekki hægt að láta þessum útúrsnúningi á máli ráðherra ósvarað.