almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Virðulegur forseti. Ég veit ekki almennilega hvaða útúrsnúning hv. þingmaður er að tala um. Stóri útúrsnúningurinn er auðvitað sá að í gær var einhvern veginn trommað upp eins og verið væri að herða verulega á aðhaldi og boða einhverjar nýjar víðtækar aðgerðir gegn verðbólgu. Þetta var kynnt í fréttatilkynningu, í yfirlýsingu frá hæstv. forsætisráðherra á facebook. Þetta var étið upp í fjölmiðlum líkt og um nýjar aðgerðir væri að ræða. Eins og kom hins vegar í ljós áðan þá eru engar breytingar á fjármálaáætlun boðaðar. Ef hæstv. félagsmálaráðherra var að tala um eitthvað allt annað en fjármálaáætlun og aðgerðir vegna verðbólgu á þessu ári þá get ég ekki alveg borið ábyrgð á því að það sé ekki það sem hann sagði heldur eitthvað allt annað, því að mér heyrðist hæstv. ráðherra áðan tala um breytingartillögur í samhengi við umræðu um fjármálaáætlun. Það er kannski ágætt að hafa það í huga að þegar hér hefur verið talað um að fjármálareglur taki gildi fyrr en áður stóð til þá kom skýrt fram á fundi fjárlaganefndar nú í hádeginu að þetta útheimtir engar breytingar á römmum fjármálaáætlunar. Hvers vegna skyldi það nú samt vera sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn var að leggja til að fjármálareglurnar tækju gildi fyrr? Það væri þá einmitt til þess að styðja við markmið um að herða enn frekar á aðhaldinu, það er ekki endilega af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hugsað sem einhver sýndaraðgerð heldur frekar liður í því að herða enn frekar á aðhaldinu miðað við það sem þegar var gert ráð fyrir, sem er eitthvað sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn kallaði einmitt eftir að yrði gert.