Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[15:46]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Auðvitað skiptir það máli að koma með frekari útfærslur á aðgerðum sem boðaðar eru í fjármálaáætlun. Það skiptir almennt máli. Hins vegar er það þannig að hæstv. ráðherra var að vísa í aðrar breytingar, svo sem það að flýta gildistöku fjármálareglna og það verður gert með sérstöku lagafrumvarpi sem tengist ekki fjármálaáætlun beinlínis. Það sem hæstv. ráðherra var að tala um hér, og skiptir auðvitað máli í hinu stóra samhengi, er að hann var að vísa í breytingar sem snúa að því að ná tökum á verðbólgunni. Fjármálaáætlun skiptir þar auðvitað gríðarlegu máli og að það sé verið að útfæra hana nánar. En það verður að skoða þetta í heildarsamhengi og taka með í myndina aðrar aðgerðir sem er verið að fara í en ekki bara, líkt og mér hefur fundist vera gert hér síðustu daga, horfa einvörðungu til fjármálaáætlunar eins og hún sé það eina sem skiptir máli inn í þetta samhengi og að það að hún hafi verið það góð í upphafi að ekki þurfi að leggja til breytingar á henni sé einhvers konar veikleiki. Svo er ekki. Það ber merki um að vandað hafi verið til verka í upphafi. Svo er verið að þétta enn á hvernig eigi að framkvæma og boða tillögur um aðrar breytingar sem á að fara í vegna þess að við ætlum að ná tökum á verðbólgunni.