almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Virðulegur forseti. Þétta á því hvernig á að framkvæma og koma með frekari útfærslu — vandinn er kannski sá að það voru heldur engar nýjar útfærslur kynntar í þessari blessuðu fréttatilkynningu og þessum svokallaða aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem reyndist svo reyndar enginn aðgerðapakki. Það eina sem kannski kom fram að væri nýtt er það að óútfærðar aðhaldsráðstafanir árið 2024 upp á 9 milljarða sem áður stóð til að skipta á milli tekju- og gjaldahliðar, jafnvel til jafns, það er svo sem ekki búið að ákveða almennilega um það, er búið að ákveða að verði allar á útgjaldahliðinni, sem ég veit ekki hvort er sérstakur sigur fyrir Vinstrihreyfinguna – grænt framboð, að það eigi sérstaklega að fara í aðhaldið á útgjaldahliðinni. En við verðum þá að vona að það verði gert skynsamlega og hagrætt þar sem unnt er að hagræða, m.a. í æðstu stjórnsýslu o.s.frv.
Varðandi einhvern meintan útúrsnúning á einhverju sem hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sagði þá get ég auðvitað ekki verið hérna í hlutverki einhverrar véfréttar að túlka og lesa hugsanir hæstv. ráðherra, þegar þeir tala kannski ekki alveg skýrt um það hvað nákvæmlega þeir meina. Ég vona að hv. þingmaður virði það við mig.