almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Frú forseti. Það er gott og nauðsynlegt að við séum í dag að ræða mótvægisaðgerðir vegna verðbólgu og eins og kom fram í andsvörum mínum áðan þá styð ég þær aðgerðir sem hér birtast í þessu máli, ég vil gjarnan halda því til haga og árétta, ég tel þær nauðsynlegar og af hinu góða. Af því að þetta frumvarp hér er náskylt fjármálaáætlun þá vil ég líka nefna að mér hefur fundist mikilvægt að sjá að auka eigi við húsnæðisuppbyggingu og það liggi fyrir fjármagn til þess.
Nú þegar endanleg útgáfa fjármálaáætlunar liggur fyrir þá held ég að það verði að setja þessar mótvægisaðgerðir hér í samhengi við stóru myndina þar. Mér finnst í sjálfu sér áhugavert að við séum að tala um endanlega útgáfu fjármálaáætlunar því að eftir allan þann tíma sem hún hefur verið til umræðu, allan þann tíma sem hún hefur verið í vinnslu, þá stendur eftir á síðasta degi að endanleg útgáfa fjármálaáætlunar er nákvæmlega hin sama og birtist okkur í lok marsmánaðar. Ekkert breyttist. Þrátt fyrir þunga ágjöf, þrátt fyrir þunga gagnrýni úr öllum áttum, er viðbragðið af hálfu stjórnvalda lítið sem ekkert.
Það er alveg rétt, sem kom fram hjá hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur, það er ýmislegt annað í pípunum. Ég sé að hæstv. ráðherra ferðamála er nú að tala um harðara regluverk gagnvart Airbnb til að liðka um fyrir framboði íbúða. Allt er það af hinu góða. Mikið af því sem ríkisstjórnin er að tala um í því samhengi er samtal um pólitíska hugmyndafræði; ofboðslega lítið af tillögum, eiginlegum tillögum, sem eru fram komnar. Ráðherrar tala um hvað þeir myndu gjarnan vilja sjá, hver væru næstu skref, hvað væri gott að myndi gerast árið 2024. Væri ekki gott að hækka veiðileyfagjöld árið 2025? En við erum hér og árið er 2023.
Ég furðaði mig á því í gær, þegar ég las fréttatilkynningu ríkisstjórnarinnar, hvers vegna það kom ekki fram hver töluleg markmið ríkisstjórnarinnar eru og voru um þróun verðbólgu og vaxta, hvað þau myndu vilja sjá með þessum aðgerðum, hvers vegna það kom ekki fram hvar aðhaldið er og hvaða nýju aðgerðir eru þarna til að kæla verðbólguna. Um þetta var lítið fjallað og eftir að hafa setið fund fjárlaganefndar í morgun þá held ég að ég skilji hvers vegna það var. Þessi markmið liggja einfaldlega ekki ljós fyrir. Fólk sem er á þeim stað að geta ekki einu sinni sagt upphátt hver markmiðin nákvæmlega eru er ofboðslega lítið líklegt til að ná árangri. Í langri fréttatilkynningu sáum við endurteknar hugmyndir, endurteknar tillögur, sama sagan sögð aftur og aftur.
Ég spurði hæstv. ráðherra út í þetta hér áðan af því að ég sé þetta þannig að þetta muni verða til þess núna að millistéttin sitji uppi með mikinn kostnað, vitaskuld af verðbólgunni en ekki síst af vaxtahækkunum lána, þeim verði áfram velt yfir á ungt fólk, unga fólkið sem kannski trúði á boðað lágvaxtaskeið, af því að með því að bregðast ekki við verðbólgunni þá blasir við að vaxtahækkanir eru áfram veruleiki fólks. Það er ungt fólk, það eru fyrstu kaupendur, það eru barnafjölskyldur sem fá að taka þennan kostnað á sig.
Síðan er það auðvitað þannig að fyrirtækin eru samkvæmt fjármálaáætlun að fá á sig 1% skattahækkun núna, þ.e. sem boðuð er 2025 fyrir árið 2024, en eins og ég segi: Mér finnst gott og mikilvægt og fagna því að sjá hér að þessi hópur sé að fá þennan stuðning núna. Ég styð það af heilum hug.
Mig langaði í samhengi við fjármálaáætlun að leyfa mér að nefna söguna um hagvöxtinn því að það er saga sem ríkisstjórnin segir okkur alltaf aftur og aftur. Þetta er yfirleitt saga sem heyrist þegar fólk spyr um verðbólgu og verðbólguhorfur, hvers vegna verðbólgan sé lengur að fara niður á Íslandi en annars staðar, hvers vegna þurfi þrefalt hærri vexti til að taka á svipaðri verðbólgu og annars staðar. Þá birtist hæstv. fjármálaráðherra og segir: Það er vegna þess að hér er svo mikill hagvöxtur, við erum í öfundsverðri stöðu. Vandamálið er bara eitt: Þessi saga og þessi söguskýring er ekki alveg rétt. Hagvöxtur á Íslandi er bæði lægri en í nágrannaríkjum okkar og sá lægsti af öllum OECD-ríkjum þegar hann er reiknaður á mann. Það er breyta sem skiptir máli.
Vandamál ríkisfjármála og verðbólguaðgerða er að þegar aðgerðir stjórnvalda byggjast á forsendum sem standast ekki djúpa skoðun þá er útkoman líka líkleg til að verða röng. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar núna miða við það að hér sé mesti hagvöxtur í OECD. Útgjöld ríkisins eru miðuð við að hagvöxtur á Íslandi sé sá mesti í Evrópu. Þá spyr maður sig: Skapar það ekki verðbólguþrýsting að eyða út frá hagvexti sem lítið stenst skoðun? Því að það er alveg rétt, hér er hagvöxtur. En þegar hann er rýndur þá blasir hin hliðin á honum við.
Þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt fyrir 2023 var talað um það á vef Stjórnarráðsins að útlit væri fyrir að hagvöxtur á Íslandi yrði einn sá mesti meðal aðildarríkja OECD, en ástæða hagvaxtarins er fólksfjölgun á Íslandi, fólksfjölgun sem stafar ekki síst af aðfluttu vinnuafli í ferðaþjónustu og í byggingargeiranum. Þegar hagvöxtur eykst bara vegna fólksfjölgunar eða þegar hagvöxtur er borinn uppi af því að fólk hefur flutt hingað í miklum mæli til að vinna í ferðaþjónustu og byggingargeiranum en framlegð í ferðaþjónustu er lítil er myndin aðeins önnur.
Hagvöxtur á Íslandi er mikill en þar er bara hálf sagan sögð. Hagvöxtur á Íslandi mætti kannski segja að sé mikill en samhengið samt tekið úr frásögninni. Ég nefni þetta núna því eftir að hafa hlustað á ráðherra ríkisstjórnarinnar, þ.e. hæstv. fjármálaráðherra, tala um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í gær, tala um gamlar hugmyndir sem nýjar, tala um hugmyndir sem aðgerðir, tala um ábyrgðarleysi sem ábyrgð, þá finnst mér þetta skipta máli, því það eru nokkrar breytur þarna sem hafa þannig áhrif á ríkisfjármálin að ef þær eru vanræktar eru þær til þess fallnar að viðhalda því ástandi sem við erum í nú. Ein slík breyta er viðskiptahalli. Viðbótartekjur ríkissjóðs eru fyrst og fremst vegna viðskiptahallans, að manni sýnist, sem þýðir þá að ríkissjóður er að auka tekjur sínar, aðallega vegna þess að þjóðarbúið í heild er að auka erlendar skuldir.
Ef ríkisfjármálin ættu í alvörunni að hafa áhrif á verðbólgu þá ætti markmiðið að vera að lækka viðskiptahallann. Ég fæ ekki séð núna, þegar endanlegt álit í tengslum við fjármálaáætlun liggur fyrir, að þetta sé markmiðið. Það er ekki markmiðið að nota auknar tekjur til að greiða niður skuldir. Þetta tvennt held ég að sé eini raunhæfi mælikvarðinn á hvort ríkisstjórnin sé í raun að vinna gegn verðbólgunni. Stóru myndina verðum við líka að ræða um þegar við erum síðan að ræða um viðbragð því að við viljum komast út úr því að vera að ræða mótvægisaðgerðir og fara að taka á verðbólgunni sjálfri.