Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[16:00]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að taka þátt í þessari umræðu um framsögu á mikilvægu máli sem ég heyri ekki annað en að við séum öll sammála um að ná að klára fyrir þinglok, og gott að heyra af stuðningi þingmannsins við frumvarpið.

En ég kem hingað upp vegna þess að stjórnarandstaðan klifar á því að það komi ekkert nýtt fram núna, að það sé ekki verið að bregðast neitt við verðbólgunni. Ég vil segja í fyrsta lagi að þetta er auðvitað rangt. Þetta er auðvitað alrangt. Ég taldi til áðan aðgerðir sem eru kynntar nýjar til leiks, eins og t.d. að flýta fjármálareglum, sem er mjög mikilvægt fyrir væntingar um verðbólgu. Ég nefndi að við erum að fara í fjárfestingar sem munu snúa að íbúðarhúsnæði; gríðarlega mikilvægt atriði, og fresta öðrum framkvæmdum að sama skapi. Við erum að boða lagabreytingar um heimagistingu og leigumarkað og við erum hér, eins og í frumvarpinu sem hér er til umræðu, að hækka bætur.

Í öðru lagi er algerlega skýrt af fréttatilkynningum og skrifum að við erum að tala um alla fjármálaáætlunina. Við erum að tala um allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn verðbólgu. Að sjálfsögðu tölum við um þetta í heild sinni. Að sjálfsögðu tölum við um þetta eins og hér séu allir leikmenn fótboltaliðsins inni á vellinum en ekki bara þeir sem eru að bætast við. Þannig má t.d. nefna að aukin skattheimta mun vera orðin rúmir 50 milljarðar á ársgrundvelli á síðasta ári áætlunarinnar þannig að mér finnst nú málflutningurinn hérna ekki bera vott um að við séum að reyna að nálgast málið heildstætt. Það er í heild sinni um að ræða umfangsmiklar aðgerðir gegn verðbólgu sem munu ásamt aðgerðum Seðlabankans verða til þess að verðbólgan mun láta undan.