almannatryggingar og húsnæðisbætur.
Frú forseti. Ég ætla bara að fá að segja það í þriðja sinn að ég tel bæði mikilvægt og nauðsynlegt að þetta mál klárist fyrir þinglok. Ráðherra talar um að stjórnarandstaðan klifi á einhverju, að stjórnarandstaðan klifi á því að ekkert sé að gerast. Ég er ekki að gera neitt annað en að klifa á því sem rétt er. Það stendur í nefndaráliti um fjármálaáætlun að meiri hlutinn leggi til að hún verði samþykkt óbreytt, engar breytingar þar. Hæstv. ráðherra er hér að telja upp að meginstefnu fyrri aðgerðir um viðbrögð núna, það sem áður hefur verið gert, og ég ætla ekki að vera í þrætum við hann um það hvaða aðgerðir fóru hérna í gegn fyrir jól.
Ég er sammála ráðherra um það að fjármálareglan sé góður leikur og mikilvægt skref. Ég er sammála hæstv. ráðherra um það að sú ákvörðun sem tekin var um launakjör æðstu embættismanna muni senda góð skilaboð inn í næstu kjaraviðræður. Hvað húsnæðismálin varðar þá finnst mér blasa við að á vakt ríkisstjórnarinnar er að hlaðast í næstu fasteignabólu. Þau eiga engin viðbrögð, engin svör, engar aðgerðir til að taka á þeim afleiðingum vaxtahækkana núna að fasteignamarkaðurinn er kominn í frost, byggingamarkaðurinn er kominn í frost. Um þetta eru allir sammála, hvort sem þeir sitja í fjárlaganefnd, velferðarnefnd eða umhverfis- og samgöngunefnd, það blasir við að það mun gerast á vakt þessarar ríkisstjórnar að hér verður til fasteignabóla. Í því samhengi — ég ætla ekki nota orðið ósvífið en það er sérstakt að tala um árangur í húsnæðismálum í því ljósi.