kosningalög o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir framsögu á nefndaráliti ásamt breytingartillögum um breytingu á kosningalögum. Ég tel þetta vera mikilvægt mál og mér finnst gott að heyra að það ríkir samstaða um þessar tillögur í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég vil einnig nefna að ég tel þessar tillögur hér eðlilegt framhald og eftirfylgni þeirra breytinga sem voru gerðar á síðasta kjörtímabili.
Það er þó eitt atriði hér sem ég hef ákveðnar áhyggjur af og kannski fyrst og fremst að það skapi einhvers konar óvissu eða óljós mörk. Það er kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga, einkum það sem varðar kosningu utan kjörfundar. Í nefndarálitinu, á bls. 5, kemur fram að lagt er upp með að með frumvarpinu verði bætt í lögin ákvæði um kostnað vegna atkvæðagreiðslu utan kjörfundar sem fer fram á grundvelli 2. töluliðar 2. mgr. 69. gr. kosningalaganna. Það er þegar það er ákveðið samstarf um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar milli sveitarfélaga og ríkisins sem er mjög mikilvægt. En ég held að þetta geti helst valdið vandkvæðum í stórum sveitarfélögum með marga byggðarkjarna þar sem getur verið langa vegalengd að fara og þá er mikilvægt að gætt sé sanngirni í þessari kostnaðarskiptingu. Hvert er álit hv. framsögumanns á því?