Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2023.

kosningalög o.fl.

945. mál
[16:35]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Berglindi Ósk Guðmundsdóttur fyrir svarið. Ég velti fyrir mér hvort nefndin hafi kallað sérstaklega eftir viðhorfum sveitarfélaga þar sem þessi kostur var nýttur samkvæmt skýrslunni. Ég hef kynnt mér skýrsluna og hún er mjög góð og hún er mjög mikilvægt gagn á bak við þessa vinnu. En mér er kunnugt um að það hefur komið upp ágreiningur um kostnaðarskiptinguna og ég sé einmitt í skýrslunni að það er ekki farið yfir kostnað akkúrat í þeim tilfellum sem ég þekki til, það er bara skautað yfir að gera grein fyrir kostnaðinum. T.d. ef sýslumaður ákveður að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar sé opin frá 10–15 á einum stað í landstóru sveitarfélagi þá segir það sig sjálft að það er útilokað fyrir fólk sem er algerlega bundið í sínum störfum að mæta þangað. Ef sveitarfélagið óskar svo eftir betri þjónustu þá er ekki rökrétt að sveitarfélagið þurfi að bera kostnað af því.

Mér er hins vegar kunnugt um það að þetta hefur víða verið leyst með einhvers konar samspili. Ég held að það sé mikilvægt, og það er ástæðan fyrir því að ég kem hér upp, að við höldum því til haga að það þurfi að fylgjast áfram með framkvæmdinni og halda áfram að leggja mat á það hvernig þessi kostnaður getur komið ólíkt niður eftir sveitarfélögum.